Þorskleður 304FS

958 ISK

Lagerstaða: Ekki til á lager

Lýsing

LÍMONUGRÆNN - HÁGLANS ÁFERÐ

Þorskleður

Leður úr þorskroði er í hæsta máta óvenjuleg blanda af fínu og grófu. Hreystrið er enn fínlegra en í laxinum en áferðin er mjög breytileg, víða slétt, en inn á milli eru grófir blettir. Liturinn er að sama skapi blæbrigðaríkur.

Uppruni:
Þorskurinn hefur frá gamalli tíð verið veiddur til matar við Íslandsstrendur og enn í dag er hann algengasta fiskafurðin sem flutt er út frá Íslandi. Þorskur er eftirsóttur af sælkerum víða um heim, til dæmis er saltaður þorskur vinsæll á Spáni.

Stærð: Lengd skinna er á bilinu 40 til 50 cm en lögun þorskleðurs er sérstakt. Það er þríhyrningslaga, breiðast við hnakkann, 12 til 15 cm og mjókkar síðan aftur að sporði.. Við bjóðum Þorskleður í fjórum stærðarflokkum; minna en 0,69 fft, 0,70-0,79 fft, 0,80-0,89 fft og stærri en 0,90 fft.

Áferð og yfirborðsmeðferð:
Þorskleður bíður upp á tvo flokka áferðar, opna hreysturvasa, sem er gróf áferð og lokaða hreysturvasa, sem er fín áferð.
Í hvorum flokki eru fjölmargir möguleikar á yfirborðsmeðferð

ATHUGIÐ! Fiskleður er náttúruleg vara og þar af leiðandi eru engin tvö skinn eins. Ef fleiri en eitt skinn eru keypt, þá munum við leitast við að velja saman skinn með svipaðri áferð og blæ. Tekið skal fram að afgreiðslutími á skinnum sem eru ekki til á lager hjá okkur getur verið allt að tveir mánuðir. Hafið samband við okkur á tölvupóst kiano@kiano.is fyrir frekari upplýsingar.

preview    

Vörukarfa

Mynt
Fjöldi 0
Samtals verð 0 ISK

Skoða körfu