Lýsing
RAUÐUR - HÁGLANS LAKKAÐUR
Hlýraleður
Óreglulegir dökkir blettirnir gefa leðri úr hlýraroði frumlegan og afgerandi karakter. Hlýraleður er slétt þar sem hlýrinn hefur ekki hreistur eins og t.d. lax og karfi.
Uppruni: Hlýrinn er djúpsjávarfiskur og er veiddur til manneldis á miðunum kringum Ísland.
Stærð: Skinn úr hlýraroði eru að meðaltali 65 cm á lengd, 15 - 18 cm á breidd. Við bjóðum hlýraleður í fjórum stærðarflokkum; minna en 1,00 fft, 1,01-1,19 fft, 1,20-1,39 fft og stærri en 1,40 fft.
Áferð og yfirborðsmeðferð: Ólíkt laxi, karfa og þorski þá hefur hlýrinn ekki hreysturvasa og hlýraleður er því slétt. Boðið er upp á fjölbreytt úrval yfirborðsmeðferðar.
ATHUGIÐ! Fiskleður er náttúruleg vara og þar af leiðandi eru engin tvö skinn eins. Ef fleiri en eitt skinn eru keypt, þá munum við leitast við að velja saman skinn með svipaðri áferð og blæ. Tekið skal fram að afgreiðslutími á skinnum sem eru ekki til á lager hjá okkur getur verið allt að tveir mánuðir. Hafið samband við okkur á tölvupóst kiano@kiano.is fyrir frekari upplýsingar.