Lýsing
BRÚNN - LAKKAÐUR - LOKAÐ HREISTUR
KARFALEÐUR
Einkenni karfaleðurs er hrjúft yfirborð eftir stórgerðar hreisturflögurnar, sem kallar fram hughrif þess villta og upprunalega. Karfaleður er auk þess mun þykkara en til dæmis skinn úr laxaroði.
Uppruni: Sjávarleður kaupir roðið af afrískum fiskvinnslufyrirtækjum. Nílarkarfinn er veiddur til manneldis í Viktoríuvatni af íbúum landanna umhverfis vatnið: Kenía, Tansaníu og Úganda.
Stærð: Stærð skinna úr roði Nílarkarfans eru mjög breytileg. Við bjóðum þau í fjórum stærðarflokkum; minni en 0,79 fft, 0,80-0,89 fft, 0,90-0,99 fft og stærri en 1,00 fft.
Litur: Karfaleður er hægt að lita í nánast óendanlega fjölbreyttum litatónum.
Áferð og yfirborðsmeðferð: Karfaleður bíður upp á tvo flokka áferðar, opna hreysturvasa, sem er gróf áferð og lokaða hreysturvasa, sem er fín áferð. Í hvorum flokki eru fjölmargir möguleikar á yfirborðsmeðferð.
ATHUGIÐ! Fiskleður er náttúruleg vara og þar af leiðandi eru engin tvö skinn eins. Ef fleiri en eitt skinn eru keypt, þá munum við leitast við að velja saman skinn með svipaðri áferð og blæ. Tekið skal fram að afgreiðslutími á skinnum sem eru ekki til á lager hjá okkur getur verið allt að tveir mánuðir. Hafið samband við okkur á tölvupóst kiano@kiano.is fyrir frekari upplýsingar.