Lýsing
SVART - RÚSSKINS ÁFERÐ
Laxaleður
Fágun og glæsileiki lýsa best eiginleikum leðurs úr laxaroði. Laxaleður er þunnt og meðfærilegt, en mjög sterkt miðað við önnur skinn af sambærilegri þykkt. Hreysturmynstrið er fínlegt og reglulegt, en mjó rönd eftir miðju skinni er helsta sérkenni laxaleðurs.
Uppruni: Laxinn lifir villtur í Norður Atlantshafinu og kemur í íslenskar ár til að hrygna. Hann er einnig ræktaður til manneldis í sjókvíum við strendur Íslands, Færeyja, Noregs og víðar.
Stærð: Skinn úr laxaroði eru að meðaltali 60 cm að lengd og 12 cm þar sem þau eru breiðust. Stærðin er mæld í ferfetum og er meðalstærðin 0,8 ferfet. Varan er seld í stærðarflokkum. Laxaleður flokkast í fjórar stærðarflokka: Minna en 0,79fft, 0,80-0,89fft, 0,90-0,99fft og stærra en 1,00fft.
Áferð og yfirborðsmeðferð: Laxaleður bíður upp á tvo flokka áferðar, opna hreysturvasa, sem er gróf áferð og lokaða hreysturvasa, sem er fín áferð. Í hvorum flokki eru fjölmargir möguleikar á yfirborðsmeðferð.
ATHUGIÐ! Fiskleður er náttúruleg vara og þar af leiðandi eru engin tvö skinn eins. Ef fleiri en eitt skinn eru keypt, þá munum við leitast við að velja saman skinn með svipaðri áferð og blæ. Tekið skal fram að afgreiðslutími á skinnum sem eru ekki til á lager hjá okkur getur verið allt að tveir mánuðir. Hafið samband við okkur á tölvupóst kiano@kiano.is fyrir frekari upplysingar.