Lýsing
Þessi einstaki handgerði hattur í klassiskum Western stíl er gerður úr Laxaleðursbútum og Hreindýraleðri. Yfirleitt eru þessi hattar bara gerðir samkvæmt sérpöntunum, en þessi tiltekni hattur var einn af þeim fyrstu sem voru gerðir hjá okkur og var leitast við að fá "Veðrað lúkk" á hann. Bandið er flétta úr laxaroði og hreindýraleðri. Það er hægt að sérpanta sambærilegan hatt í öðrum stærðum (50-64), en það lengir afhendingartímann um eina viku. Það má þó reikna með því að útlitið verði ekki nákvæmlega eins.