Lýsing
Hágæða saumavélafótir með þremur keflaröðum (6 kefli). Passar flestum gerðum af iðnaðar- sem og heimilissaumavélum. Er með fjaðrandi hjör og engan "hæl", þ.e.a.s. að engin hluit fótsins stendur aftur úr hjörinni. Hefur svipaða virkni og "göngufótur" þegar saumað er í gegnum mikla þykkt af misjöfnum efnum. Hentar einstaklega vel við Flauel (Velvet) og skilur ekki mar eftir sig eins og venjulegur saumavélafótur. Hentar einstaklega vel í bútasaum.